Viðskipti erlent

General Motors hagnast um fjóra milljarða

Rick Wagoner, forstjóri General Motors, ræðir málin.
Rick Wagoner, forstjóri General Motors, ræðir málin. Mynd/AFP

Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors, annar umsvifamesti bílaframleiðandi í heimi á eftir Toyota, skilaði hagnaði upp á 62 milljónir dala, tæpa fjóra milljarða íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er samdráttur upp á 90 prósent samanborið við sama tíma í fyrra. Rick Wagoner, forstjóri bílarisans, segir afkomuna engu að síður á réttu róli.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins í fyrra skilaði bílaframleiðandinn 602 milljóna dala,38,5 milljarða króna, hagnaði. Til samanburðar nam hagnaðurinn í fyrra 1,06 dölum á hlut en hann nemur einungis 11 sentum í ár og talsvert undir væntingum greinenda.

Helsta ástæðan fyrir samdrættinum í ár liggur í afskriftum af lánastarfsemi fyrirtækisins í Bandaríkjunum.

Þrátt fyrir samdrátturinn er þetta annar rekstrarfjórðungurinn í röð sem bílaframleiðandinn skilar hagnaði.

General Motors fór í viðamikla endurskipulagningu á rekstri félagsins síðla árs í fyrra eftir tvö viðvarandi taprekstrarár og seldi meðal annars hlut sinn í G.M.A.C., fjármálarmi fyrirtækisins, sem hafði dregið mjög úr afkomu samstæðu bílasamsteypunnar.

Rick Wagoner, forstjóri General Motors, sagði í samtali við sjónvarpsstöðina CNBC í morgun að fyrirtækið væri á góðu róli og vísaði til þess að sala á bílum lofaði góðu í Bandaríkjunum og Evrópu og væru horfur á góðum árangri á mörkuðum í Kína, Rússlandi og Suður-Ameríku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×