Handbolti

Elverum í undanúrslit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ingimundur Ingimundarson skoraði fjögur mörk fyrir Elverum í dag.
Ingimundur Ingimundarson skoraði fjögur mörk fyrir Elverum í dag.
Elverum komst í kvöld í undanúrslit úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Elverum vann Runar í tveimur leikjum og í kvöld með fimm marka útisigri, 35-30.

Ingimundur Ingimundarson skoraði fjögur mörk fyrir Elverum í dag og Sigurður Ari Stefánsson eitt.

Drammen, Sandefjord og Haugaland komust einnig í undanúrslit en dregið verður í undanúrslitin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×