Viðskipti erlent

Carlsberg orðið háðara hráolíuverði en ölsölu sinni

Dönsku bruggverksmiðjurnar Carlsberg eru nú orðnar háðari hráolíuverðinu í heiminum en ölsölu sinni. Carlsberg fylgir Rússlandi upp og niður og í gegnum súrt og sætt hvað þetta varðar.

Í ítarlegri umfjöllun um málið á börsen.dk segir að á tveimur haustmánuðum í fyrra hafi hlutir í Carlsberg fallið um 65% á markaðinum í Kaupmannahöfn sem samsvarar niðursveiflunni á rússneska hlutabréfamarkaðinum og þróun olíuverðsins.

Síðan þá hefur Carlsberg, Rússland og olíuverðið náð sér á strik. Í ár hafa hlutir í Carlsberg hækkað um 112% á meðan að Micex vísitalan í Rússlandi hefur hækkað um 115%. Á sama tíma hefur olíuverðið hækkað úr 50 dollurum á tunnuna og upp í 80 dollara.

Grunnurinn að þessu sambandi á milli Carlsberg, Rússlands og olíuverðsins er einfaldlega að bruggverksmiðjurnar hafa lagt út í umfangsmikla uppbyggingu á starfsemi sinni í Rússlandi og kostað miklu fé til að auka markaðshlutdeild sína á rússneska ölmarkaðinum.

„Carlsberg hefur orðið meir og meir háðara framvindunni í Rússlandi. Carlsberg er háð Rússlandi og Rússland er háð olíuverðinu," segir greinandinn Jens Houe Thomsen hjá Jyske Bank í samtali við börsen.dk. „Í rauninni er Carlsberg aðeins einu skrefi frá því að hafa keypt sér olíufélag."

Stjórn Carlsberg í Valby horfir hinsvegar fyrst á reksturinn sinn og síðan á þróunina á hlutabréfaverðinu að sögn Thomsen. Hann telur að Carlsberg muni þéna mikla peninga í Rússlandi. „Rússland mun verða mjólkurkú fyrir Carlsberg í framtíðinni," segir Thomsen.

Henrik Drusebjerg greinandi hjá Nordea er sammála þessu mati Thomsen. Hann bendir hinsvegar á þá pólitísku áhættu sem fylgir því að fjárfesta í Rússlandi. „Sú áhætta er gífurleg og hún takmarkar áhuga manna á fjárfestingum þar," segir Drusebjerg.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×