Viðskipti erlent

Óvíst hvort Jón Ásgeir haldi söluverði íbúðar í Khöfn

Vefsíðan business.dk greinir frá því í dag að lúxusíbúð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í Kaupmannahöfn hafi verið seld en að óvíst sé hvort Jón Ásgeir fái að halda söluverðinu. Fréttastofa hefur áður greint frá þessari íbúð og sagt hana vera bitbein milli þrotabús Baugs í Danmörku og Gaums eignarhaldsfélags Jóns Ásgeirs og fjölskyldu.

Fram kemur í frétt business.dk að þrotabúið vilji fá söluverðið til sín en sem stendur skortir búið 12 milljónir danskra kr. til að geta gert upp við kröfuhafana.

Húsið, sem stendur við Holmen í hjarta Kaupmannahafnar var til sölu hjá fasteignasölunni Nybolig og voru 15 milljónir danskra kr. eða rúmlega 360 milljónir kr. settar á hana.

Í fyrri frétt um málið á vefsíðunni Business.dk segir að um sé að ræða... "luksuriøse byhus" sem stendur við Galionsvej skammt frá Christianshavn. Þetta hús er skráð í eigu BG Denmark Aps sem Gaumur yfirtók tæplega hálfu ári fyrir gjaldþrot Baugs.

Fram kemur í umfjöllun Business.dk að nýbúið sé að endurbyggja húsið, sem er gamlt pakkhús frá árinu 1774, en það var keypt árið 2005 á 11 milljónir danskra kr. Samkvæmt veðbókarvottorði hvíldu skuldir upp á 6,7 milljónir danskra kr. á húsinu.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×