Viðskipti erlent

Rússneskur auðmaður keypti Mercedes bíl Hitlers

Rússneskur auðmaður hefur fest kaup á Mercedes bíl Adolf Hitlers en bíll er af gerðinni Mercedes 770 K og var oft notaður af Hitler við opinberar athafnir á sínum tíma.

Samkvæmt frásögn í blaðinu Express í Köln hafði rússneski auðmaðurinn samband við Michael Fröhlich bílasala í borginni og bað hann að grennslast fyrir um örlög þessa bíls.

Fröhlich varði nokkrum vikum í að finna þennan bíl. Hann komst að því að bíllinn hefði verið seldur í Austurríki eftir seinni heimsstryjöldina. Síðan lenti hann í eigu bílasafns í Las Vegas þar til að brugghúseigandi í Bæjaralandi keypti hann.

Þegar brugghúseigandinn lést árið 2008 lenti Mercedes bíllinn í eigu einkasafnara í Bielefeld sem geymdi hann í bílskúr ásamt sex öðrum bílum af sömu tegund en þeir eru mjög sjældgæfir nú til dags.

Upprunaleg skjöl og myndir staðfesta að um bíl Hitlers sé að ræða og jafnvel númeraplöturnar eru þær sömu eða 1A 148461, að sögn Fröhlich.

Rússneski auðmaðurinn, sem vill ekki láta nafns síns getið, kom á einkaþotu sinni til Þýskalands og keypti hann allt safnið af þessum Mercedes bifreiðum á einu bretti. Hann borgaði á milli 5 og 10 milljónir evra bara fyrir Hitlers-bílinn eða allt að 1,8 milljarði kr.

„Stolt safnsins, bíll Hitlers, er farinn til Mosku," segir Fröhlich.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×