Viðskipti erlent

Bandaríkin sigla út úr kreppunni, hagvöxtur á ný

Landsframleiðslan í Bandaríkjunum jókst um 3,5% á ársgrundvelli á þriðja ársfjórðungi samkvæmt áætlun þarlenda viðskiptaráðuneytisins. Um er að ræða breytingu frá öðrum til þriðja fjórðungs en sambærileg tala fyrir annan ársfjórðung var samdráttur um 0,7%.

Hagfræðideild Landsbankans fjallar um málið í Hagsjá sinni. Þar segir að í tilkynningu var lögð áhersla á að eingöngu væri um bráðabirgðaniðurstöðu að ræða en betri mynd ætti að hafa fengist eftir mánuð.

Vöxtur landsframleiðslunnar að þessu sinni kemur í kjölfar fjögurra fjórðunga í röð af samdrætti og þykir því mikið gleðiefni, sérstaklega í ljósi þess að almennt var búist við minni vexti.

Eins og við var að búast er vöxturinn að mestu drifinn áfram af samneyslu þar sem bandaríska ríkisstjórnin hefur dælt peningum í hagkerfið með ýmsu móti. Hins vegar jókst einnig einkaneysla og fjárfesting sem gefur bjartsýnisröddum byr undir báða vængi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×