Golf

Woods með fjögurra högga forystu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods á Hazeltine-vellinum í gær.
Tiger Woods á Hazeltine-vellinum í gær. Nordic Photos / AFP

Tiger Woods er með fjögurra högga forystu eftir fyrsta tvo keppnisdagana á bandaríska PGA-meistaramótinu, síðasta risamóti ársins í golfi.

Hann lék á 70 höggum í gær og er samtals á sjö höggum undir pari. Fimm kylfingar eru á þremur höggum undir pari.

Meðal þeirra er Írinn Padraig Harrington og Englendingurinn Ross Fisher en svo virðist sem að enginn geti veitt Tiger alvöru samkeppni.

Tiger fékk fugla á 6. og 7. holu en skolla á 10. Hann fékk svo þrjá fugla í röð, þann fyrsta á 14. holu, og tók þá örugga forystu.

Það hefur hins vegar lítið gengið hjá Phil Mickelson sem er á fjórum höggum yfir pari. Hann rétt svo slapp í gegnum niðurskurðinn.

Meðal þeirra sem eru fallnir úr leik eru Sergio Garcia, Stuart Appleby, Justin Rose og Brian Gay.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×