Viðskipti erlent

Adidas og Puma binda enda á 60 ára illdeilur

Þýsku íþróttavörurisarnir Adidas og Puma hafa ákveðið að binda endi á 60 ára gamlar illdeilur milli fyrirtækjanna. Verður þetta gert með vinaleik í fótbolta milli starfsmannaliða þeirra.

 

Það voru bræðurnir Adi og Rudolf Dassler sem hófu framleiðslu á íþróttaskóm á þriðja áratugnum í þvottaherbergi móður sinnar í bænum Herzogenaurach í Bæjaralandi á þriðja áratug síðustu aldar. Síðan kastaðist í kekki milli þeirra bræðra á stríðsárunum, sennilega af pólitískum ástæðum, og þeir stofnuðu sitthvort skófyrirtækið í bænum árið 1948, Puma og Adidas.

 

Í frétt um málið á ananova.com segir að fyrirtæki þeirra bræðra hafi staðið sitthvorumegin við á sem rennur í gegnum Herzogenaurach. Deilur þeirra bræðra skiptu bænum í tvennt. Annaðhvort varstu í Puma liðinu eða Adidas.

 

Í sameinginlegri yfirlýsingu frá fyrirtækjunum segir að þau hafi ákveðið að leggja niður deilur sínar til stuðnings við Peace One Day samtökin sem halda árlegan dag sinn gegn ofbeldi á mánudaginn kemur.

 

Hvorugu fyrirtækjanna er nú stjórnar af afkomendum þeirra bræðra. Hinsvegar vakti það töluverða undrun bæjarbúa að Frank Dassler, sonarsonar Rudolfs, vann fyrir bæði fyrirtækin.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×