Viðskipti erlent

FIH í hættu á lækkun lánshæfismats síns hjá Moody´s

FIH bankinn í Danmörku, sem nú er í eigu íslenska ríkisins, er í hættu á að fá lánshæfismat sitt lækkað hjá matsfyrirtækinu Moody´s. Moody´s hefur sagt að það íhugi að lækka lánshæfismat hjá 11 dönskum fjármálafyrirtækjum þar á meðal sjö bönkum.

Í frétt um málið í Berlingske Tidende segir að bankarnir sem hér um ræðir séu auk FIH, Nordea, Amagerbanken, Jyske Bank, Spar Nord Bank, Sydbank og Ringkjöbing Landbobank. Er Moody´s með þá á neikvæðum horfum.

Hinsvegar segir Moody´s að það muni staðfesta núverandi lánshæfismat hjá Danske Bank og Föroya Banki en sá síðarnefndi er skráður í kauphöllinni hér á landi.

Fram kemur í fréttinni að ástæðurnar fyrir því að Mody´s íhugar nú að lækka lánshæfið hjá þessum bönkum sé að framundan séu meiri afskriftir á lánum hjá dönskum fjármálastofnunum en Moody´s hafði áður gert ráð fyrir. Rekstur fjármálafyrirtækja í Danmörku verður erfiðari en áður var talið auk þess að Moody´s hefur áhyggjur af miklum skuldum heimila í landinu.

Þá segir að útlit sé fyrir að samdrátturinn í efnahagslífi Dana muni halda áfram inn á næsta ár.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×