Viðskipti erlent

Óttuðust annað hrunaskeið vegna Dubai

Ríkisfyrirtækið Dubai World hefur staðið fyrir ævintýralegri uppbyggingu í Dúbaí. Fréttablaðið/getty
Ríkisfyrirtækið Dubai World hefur staðið fyrir ævintýralegri uppbyggingu í Dúbaí. Fréttablaðið/getty
Helstu hlutabréfavísitölur í Miðausturlöndum lækkuðu í gær vegna ótta við að stoðir arabísku fyrirtækjasamsteypunnar Dubai World myndu valda nýrri fjármálakreppu.

Skuldir samstæðunnar nema sextíu milljörðum dala og óskuðu forráðamenn hennar eftir því í síðustu viku að fá hálft ár til að gera upp mál sín. Dubai World hefur að mestu staðið fyrir uppbyggingu í arabaríkinu Dúbaí og byggt þar upp skýjakljúfa og manngerðar eyjar.

Erlendar skuldir Dúbaí-ríkis eru aðeins tuttugu milljörðum dala hærri en skuld fyrirtækjasamsteypunnar, sem er að öllu leyti í eigu hins opinbera. Þrátt fyrir það hafði bandaríska stórblaðið Wall Street Journal eftir háttsettum ráðamönnum í Dúbaí ekki ríkisábyrgð á skuldum fyrirtækisins og ætti ríkið ekki að greiða fyrir óráðsíu einkafyrirtækis. Helstu lánardrottnar Dúbaí og fyrirtækja þar í landi eru bresk fjármálafyrirtæki. Gengi hlutabréfa þeirra lækkaði hressilega í dag vegna óvissunnar í Dúbaí bæði í síðustu viku og um helgina.

Ástandið batnaði nokkuð síðdegis í gær í kjölfar þess að seðlabanki Sameinuðu arabísku furstadæmanna ákvað að ábyrgjast skuldir nágrannaríkisins og fyrirtækja í eigu þess. Í kjölfarið hafði Bloomberg eftir fjármálasérfræðingum að líklegt þyki að fyrirtæki í landinu geti staðið við skuldbindingar sínar.- jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×