Viðskipti erlent

Bolton tapar á falli Landsbankans

Frá útibúi Landsbankans í London.
Frá útibúi Landsbankans í London.
Borgarstjórn Bolton á Englandi hefur einungis fengið 16 prósent tilbaka af þeim fjármunum sem borgarstjórnin lagði inn á innlánsreikninga Heritable bank, dótturfélags Landsbankans á Bretlandi. Áður hafði verið gert ráð fyrir að borgarstjórnin fengi um 80% af fjárfestingum sínum tilbaka en nú bendir hins vegar allt til þess að borgarstjórnin fái einungis 70% af fjárfestingum sínum tilbaka.

Fram til þessa hefur borgarstjórninni verið greidd 650 þúsund pund en hún á von á því að fá aðra greiðslu upp á 400 þúsund pund fyrir lok þessa árs. Þetta kom fram á breska fréttavefnum thisislancashire.co.uk í gær.

Borgarstjórnin lagði fjórar milljónir punda inn á reikninga hjá Heritable bank. Fái borgarstjórnin áðurnefnd 400 þúsund pund hefur borgarstjórnin endurheimt um 26% af heildarupphæðinni sem bankinn lagði inn á innlánsreikninga hjá Heritable bank.

Að auki lagði borgarstjórnin tvær milljónir punda inn á reikninga Icesave, þar með fjárfesti hún fyrir alls sex milljónir punda eða rúmlega 1,2 milljarða króna hjá Landsbankanum.

Margir Íslendingar hafa gert garðinn frægan hjá knattspyrnuliðinu Bolton á Englandi og ber þar helst að nefna Guðna Bergsson, sem var fyrirliði liðsins um nokkurra ára skeið, Eið Smára Guðjohnsen, Arnar Gunnlaugsson að ógleymdum Grétari Rafni Steinssyni sem er núverandi leikmaður liðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×