Viðskipti erlent

Góðgerðarsjóðir á bakvið stærsta köfuhafann í Glitni

The Irish Times greinir frá því í dag að Burlington Loan Management sé meðal kröfuhafa í Glitni en Burlington er staðsett í Dublin. Blaðið átti í erfiðleikum með að finna út eignarhaldið á Burlington en komst næst því að Burlington sé í eigu þriggja góðgerðarsjóða.

Sjóðir þeir sem hér um ræðir heita Badb Charitable Trust, Eurydice Charitable Trust og Medb Charitable Trust. Þessir sjóðir eiga það allir sameiginlegt að vera með forstjóra frá sömu lögmannastofunni, Matheson Ormsby Prentice (MOPS). Þar að auki sé Burlington í hýsingu hjá Bank of New York, það er útibúi þess banka á Írlandi.

Talsmaður MOPS vildi ekkert tjá sig um málið þegar Irish Times leitaði eftir viðtali í gærkvöldi en sem kunnugt er nema kröfur Burlington í Glitni um 150 milljörðum kr. og er þar um stærsta einstaka kröfuhafann að ræða. Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni er Burlington skráð til heimilis í sama húsi og MOPS.

Reuters greinir einnig frá því í dag að hafa reynt að fá viðtal við talsmann Burlington vegna kröfu þeirra í Glitni en verið hafnað.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×