Viðskipti erlent

Heimsmarkaðsverð á áli í niðursveiflu

Heimsmarkaðsverð á áli hefur verið í niðursveiflu þessa vikuna eftir að orðrómur komst á kreik í upphafi vikunnar um að Kínverjar ætluðu að hefja framleiðslu á ný í nokkrum álvera sinna sem staðið hafa lokuð um hríð.

Álverð í þriggja mánaða framvirkum samningum á markaðinum í London stendur nú í tæpum 1.510 dollurum á tonnið en verðið fór í 1.585 dollara á tonnið í síðustu viku og varð hæst 1.550 dollara í þessari viku.

Bernt Reitan aðstoðarforstjóri Alcoa, eiganda Fjarðaráls, sagði í frétt á Bloomberg-fréttaveitunni í upphafi vikunnar að orðrómurinn frá Kína gæti skaðað álverðið. „Það er engin þörf á því að gangsetja þessi álver að nýju í ljósi birgðastöðunnar í heiminum og eftirspurnar," segir Reitan. „Við erum en með töluverðar umframbrigðir."

Samkvæmt upplýsingum frá London Metal Exchange, sem fylgist með birgðastöðunni í heiminum, námu álbirgðirnar 3,9 milljónum tonna í síðustu viku og höfðu þrefaldast frá því í fyrra.

Kína, sem er stærsti álframleiðandi heimsins, hefur skorið niður álframleiðslu sína um 20% frá því í fyrra og er talið að álmarkaðurinn þar sé nú í jafnvægi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×