Viðskipti erlent

Sarkozy mokar 120 milljörðum í franska bændur

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti tilkynnti í dag efnahagsaðstoð upp á 650 milljónir evra eða um 120 milljarða kr. til handa frönskum bændum. Fyrir utan þessa aðstoð standa bændunum til boða ódýr lán upp á um 185 milljarða kr. í viðbót.

Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að tveimur mánuðum fyrir jól opni Sarkozy jólagafir sínar til franskra bænda. Í ræðu sem forsetinn hélt í Jura-fjöllunum segir hann að þetta sé gert til að aðstoða bændurnar til að lifa af óvenjulega kreppu.

Ungum bændum, einkum þeim sem reka mjólkurbú, mun samkvæmt áformum Sarkozy bjóðast lán á 1 til 1,5% vöxtum.

„Frakkland mun aldrei snúa bakinu við landbúnaði sínum. Ég hafna því að horfa á kreppuna loka landbúnaðinum," segir Sarkozy en áform hans verða að veruleika fyrir áramótin.

Frakklandsforseti segir það óásættanlegt að meðan að afurðaverð hjá bænum hafi lækkað um 20% á síðasta ári hafi verið á landbúnaðarvörum til neytenda aðeins lækkað um 1%. Hann hvetur því framkvæmdanefnd ESB til að setja á fót regluverk sem stjórni verði á landbúnaðarvörum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×