Viðskipti erlent

Tíu bankar kolféllu á álagsprófi

Timothy Geithner er bjartsýnn maður.
Timothy Geithner er bjartsýnn maður.

Alls féllu tíu bandarískir bankar á álagsprófi sem fyrir þá var lagt á dögunum. Prófið á að ganga úr skugga um það hversu viðbúnir bankarnir eru til þess að bregðast við aðstæðum fari kreppan versnandi. Alls vantaði bönkunum tíu 74,6 milljarði dollara til þess að standast prófið.

Sá banki sem kom verst út úr prófinu var Bank of America en hann vantaði tæpar fjörtíu milljaðir dollara til þess að standast prófið.

Annar banki sem féll var Weels Fargo en þar munaði tæpum 14 milljörðum upp á að hann gæti staðist álagið. Þá vantaði GMAC, fjárhagslegur armur General Motors, ellefu og hálfan milljarð til þess að standast prófið.

„Okkar von með prófinu er sú að bankarnir geti náð sér aftur á strik," sagði fjármálaráðherrann Timothy Geithner sem trúir að flestir bankanna muni geta náð sér á strik og orðið að öruggum bönkum á ný.

Frá þessu var greint á fréttavef BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×