Viðskipti erlent

Aftur mótmæli í London vegna Kaupþings

Stuðningsfólk Iðnaðar og vísindasafnsins (MOSI) í Manchester ætlar að efna til mótmæla við Westminster, þinghúsið í London, vegna tap safnsins á hruni Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi. Safnið átti 900.000 pund eða rúmlega 170 milljónum kr. á reikningi hjá bankanum.

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem efnt er til mótmæla í London vegna Kaupþings. Í síðustu viku voru mótmæli fyrir utan Downingstreet 10, bústað forsætisráðherrans. Þar var á ferðinni stuðningsfólk krabbameinssamtakanna Christe sem einnig reka samnefndan spítala í Manchester.

Samkvæmt frétt í Manchester Evening News er MOSI einn vinsælasti ferðamannastaður Manchester og átti að nota féið sem tapaðist til þess að endurnýja aðalbyggingu safnsins og setja á fót námskeið.

Fram kemur að í dag muni Steve Davies forstjóri safnsins og framkvæmdastjórn þess eiga fund með þingmönnum vegna málsins. Ætla þeir að reyna að fá þingmennina til að beita stjórnvöld þrýstingi til þess að fá féið endurgreitt.

Innistæðusjóður bankatrygginga í Bretlandi (FSCS) hefur hingað til hafnað óskum aðila á borð við safnið og krabbameinssamtökin að endurgreiða þeim þær upphæðir sem töpuðust á hruni íslensku bankanna í Bretlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×