Viðskipti erlent

FIH bankinn sækir um 37 milljarða ríkisaðstoð

FIH bankinn í Danmörku hefur sótt um 1,7 milljarða danskra kr. aðstoð, eða um 37 milljarða, frá dönskum stjórnvöldum. Umsóknin er í gegnum svokallaðan „bankpakke II" sem ætlaður er til aðstoðar þeim dönsku bönkum sem eiga í erfiðleikum vegna fjármálakreppunnar.

FIH bankinn er sem kunnugt í eigu íslenskra stjórnvalda eftir að Seðlabankinn veitti Kaupþingi, fyrrum eigenda FIH, neyðarlán s.l. haust skömmu áður en Kaupþing fór í þrot. Lánið var með allsherjarveði í FIH.

Samkvæmt uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung tapaði FIH 297 milljónum danskra kr. eða rúmlega 6 milljörðum kr. eftir skatta á tímabilinu. Þetta er nærri hálfs milljarðs danskra kr. viðsnúningur til hins verra m.v. sama tímabil árið áður.

Helsta ástæðan fyrir tapinu nú er kostnaður við endurskipulagningu bankans upp á 80 milljónir danskra kr. og afskriftir upp á tæplega 450 miljónir danskra kr. að því er segir í frétt um málið í Jyllands Posten.

Í tilkynningu um uppgjörið segir að það sé ekki ásættanlegt. Hinsvegar er tekið fram að tapið á rekstrinum hafi ekkert með íslenska efnahagshrunið að gera. FIH hafi ekki haft neina áhættu á Íslandi, hvorki beint eða óbeint, og muni svo verða áfram.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×