Viðskipti erlent

Kínverjar hafa áhyggjur af peningaprentun vestan hafs

Kínverjar hafa miklar áhyggjur af peningaprentun Bandaríkjamanna. Sameinuðu þjóðirnar telja að draga verði úr vægi Bandaríkjadals í heimsviðskiptunum.

Bandaríkjadalurinn er mikilvægasti gjaldmiðill heimsviðskiptanna. Til að mynda fer megnið af olíuviðskiptum fram í dölum. Kínverjar hafa miklar áhyggjur af peningaprentun þeirra vestra. Haft er eftir hátt settum kínverskum stjórnarerindreka í breska blaðinu Telegraph, að Kínverjar vonist eftir breytingum á peningastefnu Bandaríkjamanna. Það leiði til verðbólgu, haldi þeir áfram að prenta peninga sem leiði aftur til þess að eftir nokkur misseri eigi Bandaríkjadalur eftir að hríðfalla.

Megnið af gjaldeyrisforða Kínverja er í bandaríkjadölum, en erindrekin segir að þeir ætli að auka fjölbreytni forðans með því að kaupa evrur, japönsk jen og aðrar myntir.

Kínverjar, ásamt Indverjum, Brasilíumönnum og Rússum, hafa fyrr á árinu kallað eftir því að verulega verði dregið úr vægi Bandaríkjadals í heimsviðskiptunum. Fram kemur í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna, sem fréttaveitan Bloomberg vitnar til, að ríki samtakanna ættu að sameinast um nýja heimsviðskiptamynt.

Til þess að draga úr hættu sem steðji að ýmsum markaðssvæðum vegna Bandaríkjadalsins, en bent er á að fjármálakreppan sem ríður yfir heiminn sé tilkomin vegna húsnæðilána bandarískra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×