Viðskipti erlent

Sex aðilar eiga 92 prósent breskra fjármálafyrirtækja

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Skotlandsbanki er einn risanna sex.
Skotlandsbanki er einn risanna sex.

Níu af hverjum tíu bönkum og fjármálafyrirtækjum í Bretlandi eru í eigu sömu sex aðilanna.

Örfáir breskir fjármálarisar eru að sölsa undir sig eignarhald nánast alls fjármálageirans þar í landi, ef marka má rannsókn aðstandenda vefsíðunnar moneysupermarket.com. Á aðeins þremur árum hafa sex stórfyrirtæki, sem áður áttu 59 prósent banka og fjármálafyrirtækja, eignast 92 prósent fyrirtækja í nefndum geira og þá er auðvitað ótalinn aragrúi fyrirtækja í eigu téðra fjármálafyrirtækja sem sinna annarri starfsemi en þeirri sem beinlínis tengist fjármálum.

Risarnir sex eiga sér margir hverjir kunnugleg nöfn. Þetta eru Lloyds Banking Group, Skotlandsbanki, Barclays, Santander, Nationwide og risabankinn HSBC en skammstöfunin stendur fyrir Hong Kong and Shanghai Banking Corporation og reyndar er um breskt fyrirbæri að ræða þrátt fyrir nafnið.

Kevin Mountford hjá Moneysupermarket segir þróunina vera skuggalega og nefnir sem dæmi að fimmtán stórverslanir í London, sem áður voru hver í eigu síns aðila, tilheyri nú allar einhverjum hinna stóru sex. Eins bendir hann á að fækkun fyrirtækja sé töluverð vegna þess að bankar hafi tekið þau yfir og lokað þeim. Fækkunin er úr 12.594 niður í 11.800 á þremur árum að hans sögn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×