Viðskipti erlent

Alcoa: Óvæntur hagnaður, hlutabréf hækka um 6%

Bandaríski álrisinn Alcoa skilaði óvæntum hagnaði á þriðja ársfjórðungi. Nam hagnaðurinn 39 milljónum dollara, eða 4,9 milljörðum kr. sem gerir 4 sent á hlutinn. Sérfræðingar höfðu hinsvegar spáð tapi upp á 9 sent á hlutinn. Hlutir í Alcoa hækkuðu um 6% á eftirmarkaði þegar uppgjörið var tilkynnt eftir lokun markaða í gærkvöldi.

Samkvæmt frétt um uppgjörið á Reuters eru ástæðurnar fyrir hinum óvænta hagnaði einkum þær að hagræðingar og sparnaðaraðgerðir núverandi stjórnar hafa skilað góðum árangri. Þar að auki hefur álverð stöðugt farið hækkandi í sumar. Félagið hefur dregið úr framleiðslu sinni um 20% og sagt upp 30% af starfsmönnum sínum á undanförnum 12 mánuðum.

Klaus Kleinfeld forstjóri Alcoa segir að þrátt fyrir hækkun á álverði undanfarna mánuði sé verðið enn ekki nógu hátt til þess að félagið auki framleiðslu sína að nýju.

Reiknað er með að þessi góða niðurstaða hjá Alcoa muni hafa jákvæð áhrif á markaðinn á Wall Street í dag.

Alcoa rekur Fjarðarál austur á fjörðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×