Viðskipti erlent

Hlutabréf hafa hækkað of mikið, of snemma og of hratt

Hagfræðiprófessorinn Nouriel Roubini, auknefndur Dr. Doom, segir að hlutabréf á mörkuðum heimsins hafi hækkað of mikið, of snemma og of hratt. Af þeim sökum telur hann að þessir markaðir muni taka dýfu niður á við á yfirstandandi ársfjórðungi eða fyrsta ársfjórðung á næsta ári.

Þessi orð lét Roubini, sem kennir við Háskólann í New York, falla í viðtali við Bloomberg fréttaveituna í Istanbul um helgina. Hlutabréf hafa hækkað gífurlega í verði á helstu mörkuðum heimsins undanfarna sex mánuði. Þannig hefur S&P 500 vísitalan hækkað um 51% á þessum tíma og Dow Jones Stoxx 600 vísitalan í Evrópu um 48%.

„Hinn raunverulegi efnahagur er vart farinn að rétta úr kútnum á meðan markaðarnir eru á þessari leið," segir Roubini. Hann segir að ef hagvöxtur taki ekki strax við sér muni..."markaðir að lokum staðna og laga sig að réttu verðmati. „Ég sé bil á milli þess hvað er að gerast á mörkuðunum og veikari raunstöðu á efnahagssviðinu."

Roubini telur að til skamms tíma litið þurfi frekari aðgerðir til að ýta undir vöxt efnahagslífsins til þess að koma í veg fyrir verðhjöðnun. „Hinsvegar eru auðveldir peningar þegar farnir að skapa eignabólu á hlutabréfamarkaðinum," segir Roubini.

Prófessorinn telur sem sagt að á meðan verið sé að auka hagvöxt og koma í veg fyrir verðhjöðnun sé jafnframt verið að undirbúa jarðveginn fyrir næstu hringrás fjárhagslegs óstöðuleika










Fleiri fréttir

Sjá meira


×