Viðskipti erlent

Gagnrýnir stjórnendur Kaupþings harkalega

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tony Shearer, fyrrverandi forstjóri Singer & Friedlander, er ómyrkur í máli.
Tony Shearer, fyrrverandi forstjóri Singer & Friedlander, er ómyrkur í máli.
Engir skynsamir bankastjórnendur hefðu lánað eins miklar fjárhæðir til jafn fárra viðskiptavina og Kaupþing gerði, fullyrðir Tony Shearer, fyrrverandi forstjóri Singer & Friedlander, í grein sem birtist á vef breska blaðsins Telegraph í gær.

Shearer fjallar þar um lánagögn Kaupþings sem voru opinberaðar á vefnum Wikileaks.org fyrir röskri viku siðan. Í gögnunum eru tilgreindir stærstu lántakendur hjá Kaupþingi. Þar kemur fram, eins og fréttastofa hefur áður greint frá, að 10 stærstu lántakendur fengu ríflega 1500 milljarða í lán frá bankanum.

Shearer segir að í langfæstum tilfellum hafi öryggis verið gætt. Mörg af lánunum hafi ekki verið tryggð með neinu nema hlutum í Kaupþingi, sem geti varla talist nokkur trygging. Þá segir Shearer að því hafi verið illa lýst og af mikilli ónákvæmni hvaða möguleikar væru á því að lánin fengust endurgreidd.

Þá gagnrýnir Shearer breska fjármálaeftirlitið fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir að Kaupþing eignaðist Singer & Friedlander og visa ábyrgðinni á viðskiptunum á íslenska fjármálaeftirlitið. Hann segir að breska fjármálaeftirlitið hefði átt að aðstoða íslenska fjármálaeftirlitið við að sinna eftirlitsskyldum sínum og vara stjórnendur þess við þeirri hættu sem steðjaði að.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×