Viðskipti erlent

Færri misstu heimili sín en búist var við

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Frá Westminster í London.
Frá Westminster í London.
Um það bil 11,400 einstaklingar og fjölskyldur á Bretlandi misstu heimili sín á öðrum ársfjórðungi þessa árs samkvæmt opinberum tölum þar í landi. Búist hafði verið við að töluvert fleiri fjölskyldur þyrftu að yfirgefa heimili sín, sérstaklega í ljósi mikils atvinnuleysis á Bretlandi.

Fjöldi fólks sem misst hefur heimili sín dróst saman um tíu prósent frá fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Fréttastofa Sky greinir frá þessu í dag.

Talið er að um 65 þúsund manns muni missa heimili sín á þessu ári þar sem atvinnuleysi komi líklega til með að aukast það sem eftir lifir árs.

Mjög lágir vextir eru nú á Bretlandi en stýrivextir Seðlabanka Englands eru 0,5%.

Auk þess hafa stjórnvöld sett um 175 milljarða punda inn í breska hagkerfið til að aðstoða við enduruppbyggingu efnahagslífsins. Að mati margra sérfræðinga, hafa aðgerðir stjórnvalda hleypt jákvæðu lífi í efnahagslíf landsins en þó er fullsnemmt að fagna sigri í þeim efnum þar sem enn ríkir gríðarleg óvissa um efnahagsástandið á Bretlandi.

Í gær greindi Vísir frá jákvæðum hagtölum frá Þýskalandi og Frakklandi, stærstu hagkerfum innan Evrópusambandsins.


Tengdar fréttir

Mjög jákvæðar fréttir frá stærsu hagkerfum Evrópu

Landsframleiðsla í stærstu hagkerfum evrusvæðinsins, Þýskalandi og Frakklandi, dróst einungis saman um 0,1 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs samanborið við 2,5% samdrátt á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þykir þetta benda til þess að mesta samdráttarskeið í Evrópu frá síðari heimsstyrjöldinni sé senn á enda.

Bretar í slæmum málum

Rúmlega 33 þúsund manns í Englandi og Wales voru komnir í greiðsluþrot á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Aldrei áður hafa jafn margir einstaklingar komist í greiðsluþrot á einum ársfjóðungi síðan mælingar hófust árið 1960.

Dýpri kreppa en búist hafði verið við

Niðursveiflan í bresku efnahagslífi hefur verið meiri en Seðlabanki Englands gerði ráð fyrir, þrátt fyrir það eru væntingar um efnahagslegan bata að mati Seðlabankans. Bankinn á von á því að efnahagssamdrátturinn muni nema 5,5 prósentum áður en horfur í efnahagslífinu snúast til betri vegar.

Gríðarlegt atvinnuleysi á Bretlandi og fer vaxandi

Atvinnulausum einstaklingum á breskum vinnumarkaði hefur fjölgað um 220 þúsund frá því í byrjun júní. Heildarfjöldi atvinnulausra er nú rúmlega 2,4 milljónir samkvæmt opinberum tölum þar í landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×