Viðskipti erlent

Hlutir í Royal Unibrew hækka um 500% frá botnverðinu

Hlutir í dönsku bruggverðsmiðjunum Royal Unibrew hafa hækkað um tæp 500% frá því að botninum á verðinu var náð í mars s.l. Þeir eiga þó töluvert í land með að ná hámarkinu um mitt ár 2007 þegar hluturinn komst í 785 kr. danskar.

 

Í mars s.l. fór hluturinn í Unibrew niður í 34,5 danskar kr. Í dag náði hann 206,5 kr. dönskum í kauphöllinni í Kaupmannahöfn sem er hækkun upp á 499% á þessu tímabili.

 

Stoðir seldu Straumi rúmlega 5,2% af eignarhlut sínum í Royal Unibrew s.l. vor en um er að ræða næststærsta bruggverksmiðjur Danmerkur. Eftir söluna á Stoðir áfram 16,3% í Unibrew en samanlagður hlutur þessarar tveggja aðila er 21,6%.

 

Í frétt um málið á börsen.dk segir að ástæðan fyrir hinum miklu hækkunum hjá Unibrew undanfarna mánuði skýrist einkum af því að tekjurnar hafa verið umfram væntingar á fyrri helming ársins auk þess að tekist hefur að grynnka töluvert á skuldunum. Er nú ekki talin nein hætta á að Unibrew stefni í þrot.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×