Viðskipti erlent

Mjög jákvæðar fréttir frá stærsu hagkerfum Evrópu

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Landsframleiðsla í stærstu hagkerfum evrusvæðisins, Þýskalandi og Frakklandi, dróst einungis saman um 0,1 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs samanborið við 2,5% samdrátt á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þykir þetta benda til þess að mesta samdráttarskeið í Evrópu frá síðari heimsstyrjöldinni sé senn á enda.

Samdrátturinn á fyrsta ársfjórðungi var sá mesti frá upphafi mælinga á evrusvæðinu en slíkar mælingar hófust árið 1995. Hagfræðingar höfðu gert ráð fyrir 0,5 prósenta samdrætti á evrusvæðinu á öðrum ársfjórðungi en niðurstaðan varð 0,1 prósenta samdráttur sem áður segir. Bloomberg fréttaveitan greinir frá þessu í dag.

Gengi hlutabréfa og evrunnar hefur styrkst umtalsvert í dag eftir að hagvaxtartölurnar voru birtar og vonast sérfræðingar til þess að mesta kreppan sé yfirstaðin.

Eftirspurn eftir evrópskum vörum er að aukast og björgunaraðgerðir evrópskra stjórnvalda ásamt mjög lágum vöxtum aðstoða verulega við endurreisn efnahagslífsins í Evrópu.

Þrátt fyrir þessar jákvæðu fréttir er talið að aukið atvinnuleysi í álfunni muni draga úr neyslu almennings.

„Það eru ansi góðar líkur á því að hagkerfi evrusvæðisins hafi nú náð lágmarki og það komi til með að verða hagvöxtur á næsta ársfjórðungi þar sem mörg önnur lönd munu fylgja Þjóðverjum og Frökkum út úr kreppunni," segir yfirhagfræðingur hjá ING Bank í Amsterdam.

Hann telur þó að viðsnúningurinn gæti hugsanlega dregist á langinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×