Golf

Ólafur Björn: Ég kann ágætlega við mig þarna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum á Grafarholtsvellinm í dag.
Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum á Grafarholtsvellinm í dag. Mynd/Arnþór

Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum var ánægður með daginn en hann lék á einu höggi undir pari á öðrum degi Íslandsmótsins í höggleik á Grafarholtsvelli og tryggði sér tveggja högga forskot þegar mótið er hálfnað.

„Þetta var mjög góður dagur í alla staði. Ég hélt mér við leikskipulagið og tók enga óþarfa áhættu," sagði Ólafur sem er á eftir sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli.

„Þetta er búið að vera frekar erfitt í vindinum fyrstu tvo dagana og þá er mikilvægt að sýna þolinmæði og aga. Það má passa sig að vera ekki of æstur í að ná í fugl þegar hætturnar leynast. Þetta er spurning um að einbeita sér að spila eitt högg í einu," sagði Ólafur.

„Ég hef ekki verið svona ofarlega á Íslandsmóti áður en ég hef verið í forystu á mótaröðinni áður. Ég kann ágætlega við mig þarna," sagði Ólafur. Hann fékk þrjá fugla, tvo skolla og paraði síðan þrettán af átján holum dagsins.

„Þetta var mjög jafnt og gott golf. Ég tek voðalega litlar áhættu, reyni að halda boltanum í leik og treysta síðan á stutta spilið mitt. Það hefur gengið prýðilega hingað til og ég held áfram að spila það á morgun.Ég ætla bara að hafa gaman að þessu," sagði Ólafur Björn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×