Viðskipti erlent

Emma Watson er hæstlaunaða leikkona áratugarins

Ungstirnið Emma Watson er hæstlaunaða leikkona áratugarins samkvæmt Heimsmetabók Guinness. Hin 19 ára gamla Watson hefur einkum hagnast vel á myndunum um Harry Potter þar sem hún leikur Hermonie.

Samkvæmt umfjöllun Daily Mail um málið hefur Watson byggt upp persónuleg auðæfi sem nema um 10 milljónum punda eða ríflega 2 milljörðum kr. frá því hún kom fyrst fram í gerfi Hermonie árið 2001, þá 10 ára gömul.

Fyrir utan að vera best launaða leikkonan, og slá þar með nöfnum eins og Julia Roberts, Halle Berry og Cameron Diaz ref fyrir rass, hafa myndir hennar einnig skilað mestu fé fyrir framleiðendur sína. Að jafnaði hafa myndir Watson gefið af sér um 555 milljónir dollara hver.

Watson hefur ætíð passað upp á nám sitt samhliða hlutverkum sínum á hvíta tjaldinu en sem stendur leggur hún stund á nám í list- og bókmenntafræðum við Brown háskólann á Rhode Island.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×