Viðskipti erlent

Enn fækkar starfsmönnum hjá Lloyds TSB

Breski bankinn Lloyds TSB heldur áfram að fækka starfsmönnum. Nú hafa forsvarsmenn bankans ákveðið að segja upp 200 starfsmönnum í janúar næstkomandi. Með þessum uppsögnum er fjöldi uppsagna hjá bankanum kominn í 7500 á innan við ári.

Þeir starfsmenn sem koma til með að fá uppsagnarbréf vinna á tryggingasviði bankans í Newport, Wales og í Jórvíkurskíri á meginlandi Englands. Sky fréttaveitan greinir frá þessu í dag.

Verkalýðsleiðtogar á Bretlandi eru að vonum ekki sáttir við aðgerðir bankans og segjast ekki bera nokkurt traust til stjórnar bankans og stefnu hennar. Nýlega hafði stjórn bankans tekið þá ákvörðum að hætta við fyrirhugaða lokun á útibúum bankans í Cheltenham og Gloucester og nú hafi hún ákveðið að segja upp 200 starfsmönnum.

„Þessar yfirlýsingar og ákvarðanir eru eintómt sálarstríð fyrir starfsmenn bankans sem lifa í eilífri óvissu, þessu verður að linna," er haft eftir verkalýðsleiðtoga á Bretlandi.

Eins og Vísir hefur áður greint frá á breska ríkið 43 prósenta hlut í bankanum eftir að bankanum var bjargað frá gjaldþroti í október síðastliðnum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×