Viðskipti erlent

Mikill hagnaður hjá JP Morgan

Næst stærsti banki Bandaríkjanna, JP Morgan Chase & Co., skilaði 2,7 milljarða dala hagnaði á öðrum ársfjórðungi, Niðurstöðurnar koma hæfustu greinendum á fjármálamarkaði algjörlega í opna skjöldu þar sem hagnaðurinn er mun meiri en þeir höfðu áætlað. Tekjur af fjárfestingabankastarfsemi náði nýjum hæðum.

Bloomberg fréttaveitan greinir frá þessu.

Greinendurnir höfðu áður spáð því að hagnaður á hlut myndi nema 5 sentum á hlut. Niðurstaðan varð hins vegar sú að hagnaðurinn á hlut nam 28 sentum á hlut.

Tekjur af fjárfestingabankastarfsemi dregur úr líkunum á auknunm vanskilum á neytendalánum eins og fasteigna- og kreditkortavanskilum.

JP Morgan Chase & Co. hefur skilað hagnaði á hverjum ársfjórðungi síðan niðursveiflan hófst á haustmánuðum ársins 2007. Hann er eini bankinn af stærstu fimm bönkum Bandaríkjanna sem tekist hefur að skila slíkri afkomu.

Þessi árangur á mjög erfiðum tímum er rós í hnappagatið hjá forstjóra bankans, Jamie Dimon, en sérfræðingar hæla honum í hástert.

Hlutabréf í bankanum hefur hækkað um 15% á þessu ári og hækkaði gengi hlutabréfa bankans um 4,5% í gær.


Tengdar fréttir

Enn eru háar bónusgreiðslur við lýði

Starfsmenn fjárfestingabankans Goldman Sachs eiga von á því að fá að meðaltali um 770 þúsund bandaríkjadala bónusgreiðslur, jafnvirði um 98 milljónum króna, á árinu í kjölfar góðrar afkomu bankans á fyrri helmingi ársins. Hagnaður bankans nam 3,4 milljörðum dala á öðrum ársfjórðungi og kom sú niðurstaða mjög á óvart beggja vegna Atlantshafsins. Times online greinir frá þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×