Viðskipti erlent

Vill að Gordon Brown hljóti sömu örlög og Geir H. Haarde

Jeremy Warner aðstoðarritstjóri blaðsins Daily Telegraph og helsti efnahagssérfræðingur þess vill að Gordon Brown fyrrum forsætisráðherra Bretlands hljóti sömu örlög og Geir H. Haarde fyrrum forsætisráðherra Íslands.

Þar á Warner við fréttina um að Geir H. Haarde verður dreginn fyrir Landsdóm til að standa skil á gjörðum sínum, eða aðgerðaleysi í aðdraganda hrunsins haustið 2008.

Warner fjallar um málið á bloggi sínu og þar veltir hann fyrir sér þeirri spurningu hvort ekki sé hægt að byggja upp samsvarandi málssókn gegn Gordon Brown og Geir H. Haarde stendur nú frammi fyrir.

Warner telur auðvelt að sækja Brown til saka. Hann bendir á að Brown hafi tekið allar bremsurnar af aukningu opinberra útgjalda í stjórnartíð sinni og honum hafi mistekist að hafa stjórn á ábyrgðarlausri útþennslu bankanna í Bretlandi.

Þá hafi Brown tekið valdið af Englandsbanka hvað fjármálaeftirlit varðar og komið því í hendur á nýrri, pólitískt réttri, stofnun sem engan veginn var starfinu vaxin og gaf breska þinginu stöðugt villandi upplýsingar um stöðuna í efnahagsmálum hins opinbera.

„Hvað sem öllu öðru líður er þetta nægilegt til að koma Brown bakvið lás og slá," segir Warner. „En mér er sagt að fangelsin hér séu yfirfull þannig að skilorðsbundinn dómur væri í lagi," segir Warner.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×