Viðskipti erlent

Norski olíusjóðurinn þrefaldar eignir sínar í Svíþjóð

Frá því í mars á síðasta ári hefur norski olíusjóðurinn þrefaldað hlutafjáreignir sínar í Svíþjóð. Þær stóðu í 11 milljörðum sænskra kr. í mars en eru nú komnar í 30 milljarða sænskra kr. eða um 531 milljarð kr.

Í frétt um málið í Dagens Industri segir að hlutafjárein olíusjóðsins dreifist á 79 skráð félög í sænsku kauphöllinni. Stærsta eignin er hlutur í Nordea bankanum og er sjóðurinn nú sjötti stærsti eigandi bankans.

Frá því í mars á síðasta ári hefur olíusjóðurinn verið duglegur við að kaupa hluti í sænskum bönkum, einkum SEB og Handelsbanken. „N orðmenn virðast hafa sérlega gott auga fyrir sænsku bönkunum," segir í Dagens Industri.

Vidar Korsberg Dalsbö talsmaður norska olíusjóðsins segir að það sé lítið merkilegt við kaupin á sænska hlutabréfamarkaðinum. Hann bendir á að frá sumrinu 2007, eða á tveimur árum, hafi sjóðurinn keypt hlutabréf á erelndum mörkuðum fyrir samtals yfir 1.000 milljarða norska kr. eða um 22 þúsund milljarða kr.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×