Handbolti

Óvænt tap Elverum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurður Ari Stefánsson.
Sigurður Ari Stefánsson. Mynd/Vilhelm

Elverum tapaði óvænt fyrsta leik sínum í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld.

Elverum varð í öðru sæti deildarinnar en tapaði fyrir BSK/NIF sem varð í sjöunda sæti, 33-32, á útivelli.

Liðin mætast aftur á sunnudaginn og þá á heimavelli Elverum. Liðið með betri samanlagðan árangur úr leikjunum tveimur kemst áfram í undanúrslitin.

Sigurður Ari Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Elverum í leiknum í kvöld.

Elverum datt óvænt úr leik í fjórðungsúrslitum úrslitakeppninnar á síðasta keppnistímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×