Viðskipti erlent

Telur matsfyrirtæki kynda undir skuldavanda

Í gær voru það sorphirðufólk og borgarstarfsmenn í Aþenu sem mótmæltu launalækkunum og niðurskurði grísku stjórnarinnar.
fréttablaðið/AP
Í gær voru það sorphirðufólk og borgarstarfsmenn í Aþenu sem mótmæltu launalækkunum og niðurskurði grísku stjórnarinnar. fréttablaðið/AP
Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, segir matsfyrirtæki fjármálaheimsins kynda undir skuldavanda Grikkja og ætlar að láta franska eftirlitið fylgjast grannt með þeim.

Í viðtali við franska dagblaðið Le Monde sagði hún að lækkun Standard & Poor's á lánshæfismati gríska ríkisins fimmtán mínútum fyrir lokun markaða jafngildi hvatningu til afbrota, því með þessu eru allir sem eiga grísk ríkisskuldabréf hvattir til að losa sig við þau án umhugsunar áður en markaðir loka.

Í útvarpsviðtali sagði hún nauðsynlegt að setja matsfyrirtækjunum strangar reglur til að koma í veg fyrir að þau valdi ríkjum skaða með skyndiákvörðunum.

Hún varði hins vegar 110 milljarða evra fjárhagsaðstoð til Grikkja, sem Alþjóðagjaldeyris-sjóðurinn og fimmtán Evrópuríki komu sér saman um á sunnudag. Sú fjárhæð jafngildir nærri 19.000 milljörðum íslenskra króna.

Að undanskildum AGS greiða Þjóðverjar stærsta hluta aðstoðarinnar, eða rúmlega 22 milljarða evra. Þýska stjórnin á erfitt með að sannfæra almenning í Þýskalandi um nauðsyn þessa, en á móti þarf gríska stjórnin að kljást við almenning heima fyrir um sársaukafullan niðurskurð á fjárlögum. - gb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×