Viðskipti erlent

Bakkavör lokar matvinnslufyrirtæki í Bretlandi

Yfir hundrað manns munu missa vinnu sína í Lincolnshire í Bretlandi þar sem Bakkavöru hefur ákveðið að loka Exotic Farm Produce, einu af matvinnslufyrirtækjum sínum sem þar er staðsett. Exotic Farm Produce sérhæfir sig í pökkun og sölu á grænmeti.

Samkvæmt frétt um málið á BBC segir Bakkavör í yfirlýsingu að fyrirtækið hafi ekki borið sig í langan tíma og ekki sé framtíð í að halda starfseminni áfram. Exotic Farm Produce hafi nýlega misst stóran samning við einn af viðskiptavinum sínum og þrátt fyrir mikla viðleitni hafi ekki tekist að tryggja nýja viðskiptavini á undanförnum tveimur árum.

Allt starfsfólk Exotic Farm Produce, 116 talsins, hefur nú fengið uppsagnarbréf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×