Viðskipti erlent

Economist: Írar vilja íslenska þjóðaratkvæðagreiðslu

Hafsteinn Hauksson skrifar
Vinstrimenn á Írlandi vilja halda þjóðaratkvæðagreiðslu að íslenskri fyrirmynd um lántökur hins opinbera til að ábyrgjast bankakerfið þar í landi.

Þetta kemur fram í nýjasta hefti breska vikublaðsins The Economist, en í einu leiðaraplássi þess er fjallað um Icesave atkvæðagreiðsluna síðastliðna helgi.

Þar segir blaðið að Íslendingar hafi litið til Bjarts í Sumarhúsum, hetju Halldórs Laxness, við atkvæðagreiðsluna. Þeir sem hvöttu til þess að lögin yrðu felld hafi efast um lagalega skyldu Íslendinga til að endurgreiða Bretum og Hollendingum vegna falls Landsbankans, en ekki síður hafi verið um óhlýðni við valdboð stórþjóðanna að ræða.

Þannig hafi verið hálf stórbrotið hvernig Íslendingar hafi staðið í fæturnar gagnvart voldugri þjóðum, og gagnvart þeim leiðum sem önnur ríki hafa farið til að eiga við efnahagsvanda.

Til samanburðar nefnir blaðið Íra, sem fóru þá leið að bjarga bankakerfinu sínu, meðan Íslendingar leyfðu allri starfsemi bankanna erlendis að falla. Economist útskýrir þetta sem svo að Írsku bankarnir hafi verið of stórir til að falla, en þeir íslensku of stórir til að bjarga þeim. Vegna þessa séu horfur um margt betri á Íslandi en á Írlandi.

Blaðið segir einnig að Vinstrimenn í írska þinginu krefjist þess nú að halda þjóðaratkvæðagreiðslu að íslenskri fyrirmynd um lántökur hins opinbera til að ábyrgjast bankakerfið, og að portúgalskir mótmælendur kalli einnig eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðgerðir í ríkisfjármálum þar í landi. Þeir segja að himinn og jörð hafi ekki farist á Íslandi þrátt fyrir að Icesave-samningnum hafi verið hafnað.

Blaðið vitnar þrátt fyrir það til bæði íslenskra og írskra hagfræðinga sem lýsa efasemdum um þessa íslensku leið. Þar er klykkt út með því að rétta svarið liggi líklegast mitt á milli þess að ábyrgjast bankakerfið í heild sinni, líkt og Írar, og að leyfa því að falla, líkt og Íslendingar gerðu. Þess er svo að lokum minnst að jafnvel sjálfstæðisviðleitni Bjarts í sumarhúsum hafi  að lokum leitt hann til glötunar.

Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×