Viðskipti erlent

Toyota gæti dottið niður í þriðja sætið

Svo gæti farið að bílarisinn Toyota detti niður í þriðja sætið yfir stærstu bílaframleiðendur heimsins sökum hamfaranna í Japan. Toyota hefur síðustu ár verið stærsti framleiðandi heimsins en General Motors og Volkswagen gætu siglt fram úr þeim á þessu ári. Framleiðsla Toyota og annara japanskra framleiðenda hefur stórskaðast vegna jarðskjálftans þar í landi auk þess sem skemmdir á kjarnorkuverum landsins hafa orsakað orkuskort.

Fjárfestar búast við því að kóreskir bílaframleiðendur hagnist mest á óförum Japana og hafa hlutabréf í Hyundai og Kia hækkað vegna þessa og hafa þau aldrei verið hærri. Japanskir bílaframleiðendur hafa á hinn bóginn sagt að það gæti tekið allt þetta ár uns framleiðslan nái eðlilegu stigi á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×