Viðskipti erlent

Warren Buffett fær hlutverk í The Office

Ofurfjárfestirinn Warren Buffett mun koma fram í gestahlutaverki í bandarísku útgáfunni af sjónvarpsþáttunum The Office. Verður þátturinn með Buffett sýndur á fimmtudag.

Fjallað er um málið á vefsíðu BBC. Þar segir að Buffett muni kom fram sem einn af umsækjendum í stöðu skrifstofustjórans í þáttunum.

Þar með fylgir Buffett fótspor þeirra Jim Carrey og Ricky Gervais sem einnig hafa komið fram í gestahlutverkum í þessum þáttum. Gervais skapaði raunar bresku útgáfuna af The Office sem sú bandaríska byggir á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×