Viðskipti erlent

ESB boðar til neyðarfundar vegna Ítalíu

Herman Van Rompuy forseti Evrópuráðsins hefur boðað háttsetta embættismenn ESB til neyðarfundar í dag vegna Ítalíu. Óttast er að Ítalía sé að enda í sömu sporum og Grikkland hefur hjakkað í undanfarið ár. Meðal annars berast fréttir af því að vogunarsjóðir séu nú farnir að veðja á að Ítalía lendi í sömu vandræðum og Grikkland.

Í frétt um málið á Reuters segir að meðal þeirra sem munu sitja neyðarfundinn eru Jean-Claude Trichet seðlabankastjóri ECB, Jean-Claude Juncker formaður nefndar fjármálaráðherra ESB, Jose Manuel Barroso formaður framkvæmdanefndar ECB og Olli Rehn efnahagsstjóri nefndarinnar.

Fundurinn var ákveðinn  eftir mikla eignasölu á Ítalíu s.l. föstudag sem jók mjög á áhyggjur manna um að á Ítalíu væri hafið sama ferli og felldi Grikkland. Meðal annars lækkuðu hlutir í Unicredit Spa stærsta banka Ítalíu um 7,9% á föstudeginum. Ítalska úrvalsvísitalan lækkaði um 3,5%.

Það eru einkum miklar opinberar skuldir Ítalíu sem valda áhyggjum en mældar sem hlutfall af landsframleiðslu eru skuldirnar þær mestu í Evrópu ef Grikkland er undanskilið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×