Viðskipti erlent

Vilja niðurskurð og betri skattheimtur í Grikklandi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bob Traa, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Grikklandi, leggst gegn skattahækkunum í landinu.
Bob Traa, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Grikklandi, leggst gegn skattahækkunum í landinu. Mynd/ AFP.
Grikkland þarf betri skattheimtur og meiri niðurskurð, en ekki skattahækkanir. Með því má koma í veg fyrir frekari áföll í efnahagslífi landsins. Þetta kom fram í máli forystumanna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í dag.

Fulltrúar Grikklands, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins funda í kvöld til þess að meta hvort Grikkir hafi fylgt efnahagsáætlun sinni nægjanlega vel að undanförnu. Grikkland hefur samið við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um lánafyrirgreiðslu samkvæmt sameiginlegri efnahagsáætlun þeirra.

Fyrsti hluti lánsins hefur þegar verið greiddur og nú eru Grikkir að freista þess að fá annan hlutann. Upphæðin nemur 8 milljörðum evra. BBC segir að Grikkir þurfi að fá annan hluta fyrir lok næsta mánaðar, annars fari ríkið í greiðsluþrot. Skilyrði fyrir því að lánið verði veitt er fyrst og fremst það að umsvif ríkisins verði minnkuð, stofnunum lokað og opinberum starfsmönnum sagt upp störfum.

Að auki hafa grísk stjórnvöld boðist til þess að setja eignaskatt á sem yrði innheimtur með orkureikningum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leggst þó gegn slíku. „Þetta verður hvorki skynsamlegt á efnahagslegan né pólitískan hátt," segir Bob Traa fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Grikklandi. Hins vegar væri rétt að bæta skattkerfið og koma í veg fyrir skattaundanskot.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×