Viðskipti erlent

Áhyggjur vegna vanda Ítalíu magnast

Silvio Berlusconi er ekki vandamál Ítalíu, heldur alltof miklar skuldir og lokaðir lánamarkaðir.
Silvio Berlusconi er ekki vandamál Ítalíu, heldur alltof miklar skuldir og lokaðir lánamarkaðir.
Áhyggjur fjárfesta af fjárhagsvanda Ítalíu hafa magnast í dag, þvert á það sem margir höfðu spáð fyrir um fyrir sólarhring síðan. Á vefsíðu Wall Street Journal í gær kom meðal annars fram að fjárfestar horfðu til þess með tilhlökkun að Silvio Berlusconi væri að hætta störfum.

Yfirlýsing hans um að hann væri á útleið úr stjórnmálum sló hins vegar ekkert á þróunina á lánsfjármörkuðum. Áhættuálag á tíu ára ríkisskuldabréf Ítalíu hækkaði snögglega í dag upp fyrir sjö prósent. Þetta þýðir að landið getur ekki endurfjármagnað skuldir sínar á þeim kjörum sem bjóðast nú. Vandinn er að þungir gjalddagar á lánum eru framundan. Fjárfestar trúa því að Ítalía muni ekki geta borgað þegar á hólminn er komið, og því hefur áhættuálagið á landið hækkað stöðugt.

Fastlega er þó búist við að Seðlabanki Evrópu muni koma landinu til bjargar, en þó með þeim formerkjum, að stjórnvöld á Ítalíu verði búin að grípa til aðgerða í ríkisfjármálum sem gera það raunhæft að stunda undir skuldabyrði landsins.

Til viðbótar við slæma stöðu ríkisins bætist síðan veikburða fjármálakerfi en lánshæfiseinkunnir allra stærstu banka landsins hafa lækkað um tvo flokka á síðustu tveimur mánuðum.

Ítalía er þriðja stærsta hagkerfi evrusvæðisins á eftir því franska og þýska.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×