Viðskipti erlent

Hlutir í Facebook til sölu í útboði

Mark Zuckerberg, forstjóri og stærsti eigandi Facebook.
Mark Zuckerberg, forstjóri og stærsti eigandi Facebook.
Facebook stefnir að því að auka hlutafé félagsins í opnu útboði á næsta ári, líklega á milli apríl og júní. Þetta kemur fram í frétt á vef Wall Street Journal í kvöld.

Fullyrt er forsvarsmenn Facebook, með forstjórann og stærsta eigandann Mark Zuckerberg fremstan í flokki, stefni að því að safna um 10 milljörðum dollara, um 1.150 milljörðum króna, í nýju hlutafé. Fyrirtækið yrði þá um 100 milljarða dollara virði, að því er fram kemur á Wall Street Journal.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×