Viðskipti erlent

Óróleiki á mörkuðum heimsins

Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum og Evrópu tóku dýfu vegna ástandsins í Grikklandi. 
NordicPhotos/AFP
Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum og Evrópu tóku dýfu vegna ástandsins í Grikklandi. NordicPhotos/AFP
Ákvörðun Georgs Papandreús, forsætisráðherra Grikklands, um að vísa björgunarpakka evrusvæðisins til þjóðaratkvæðagreiðslu olli mikilli ókyrrð á mörkuðum heimsins í gær.

Í samkomulaginu felst bæði niðurfelling helmings skulda Grikklands og 100 millarðar evra í ný lán, en einnig mikill niðurskurður á ríkisútgjöldum og skattahækkanir, sem hafa valdið mikilli úlfúð meðal almennings í Grikklandi.

Dow Jones-vísitalan féll um nær 300 punkta og hlutabréf stórra banka eins og Citigroup og JP Morgan féllu skarpt.

Vísitölur féllu einnig víða um Evrópu. Á Ítalíu féll markaðurinn um 6,8 prósent, 5,4 í Frakklandi og 5 í Þýskalandi.

Bandaríkjadalur styrktist hins vegar sem og ríkisskuldabréf og aðrar tryggari fjárfestingar.

Gríska stjórnin fundaði um ástandið í gærkvöldin en vantrauststillaga verður lögð fram á þingi á föstudag. Papandreú mun einnig hitta aðra leiðtoga ESB-ríkja á næstu dögum í tengslum við fund G20-ríkjanna. - þj / sjá síðu 6






Fleiri fréttir

Sjá meira


×