Viðskipti erlent

Rússar neyðast til að lækka skatta á olíu- og gasvinnslu

Deepsea Delta-borpallurinn er meðal þeirra sem borað hafa á Shtokman-svæðinu í Barentshafi.
Deepsea Delta-borpallurinn er meðal þeirra sem borað hafa á Shtokman-svæðinu í Barentshafi.
Það eru ekki aðeins íslensk stjórnvöld sem neyðast til að breyta skattareglum vegna olíu- og gasvinnslu. Nú hafa rússnesk stjórnvöld tilkynnt að endurskoða þurfi rússnesku skattalöggjöfina vegna olíu- og gasvinnslu á hafsbotni. Með því vonast þau til að uppbygging hefjist á rússneska Shtokman-svæðinu í Barentshafi, djúpt norðaustur af Múrmansk.

24 ár eru liðin frá því þar fundust álitlegar gaslindir en þrjú olíufélög, hið rússneska Gazprom, hið franska Total og norska Statoil, tilkynntu sameiginlega í síðasta mánuði að skattalöggjöf Rússlands væri þess eðlis að þau treystu sér ekki til að leggja í gríðarmiklar fjárfestingar til að hefja þar gasvinnslu.

Ríkisstjórnir Rússlands og Noregs vilja báðar stuðla að aukinni vinnslu úr Barentshafinu og er Statoil áfjáð í að taka þátt í verkefnum beggja megin miðlínunnar. Á árlegri tvíhliða ráðstefnu Rússa og Norðmanna í Osló í vikunni um nýtingu Barentshafsins lýsti aðstoðarauðlindaráðherra Rússlands því yfir að endurskoða þyrfti skattalöggjöfina í því skyni að auka samkeppnishæfni kolvetnis í rússneskri lögsögu, að því er norska Aftenbladet greindi frá. Fram að kom að rússneska löggjöfin væri miðuð við olíu- og gasvinnslu á landi, en væri óhagstæð vinnslu af hafsbotni, sem væri margfalt dýrari.

Undirbúningur að nýtingu Shtokman-gaslindanna hófst upp úr 1990. Fyrstu hugmyndir gerðu ráð fyrir að gasið yrði flutt með skipum í fljótandi formi til Bandaríkjanna en síðar var ákveðið að stefna að því að selja gasið til Evrópu og leggja svokallaða Nord Stream-gasleiðslu frá Múrmansksvæðinu til Pétursborgar. Fyrst þarf þó að leggja 600 kílómetra langa neðansjávargasleiðslu frá Shtokman til Kola-skaga.

Gazprom áætlar að kostnaður við uppbygginguna verði um 12 milljarðar bandaríkjadala, eða sem svarar 1.500 milljörðum íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×