Viðskipti erlent

Ekkert varð af olíusölubanni Íran gegn ESB

Ekkert varð af boðuðu olíusölubanni Íraks til Evrópusambandsins (ESB) um helgina.

Margir þingmenn landsins vildu keyra frumvarp um bannið í gegnum íranska þingið í gærdag en deilur risu um meðferð frumvarpsins í þinginu. Síðan var ákveðið að málið fengið þinglega meðferð.

Jafnframt er reiknað með að þingið muni draga úr hörkunni í frumvarpinu og samþykkja aðeins táknrænt bann við sölu á olíu til nokkurra ríkja en ekki Evrópusambandsins í heild, að því er segir í frétt á CNN um málið.

Formaður orkunefndar íranska þingsins segir að nú standi yfir viðræður milli þingmanna og ráðherra um stöðuna í málinu. Annar nefndarmaður segir að tryggja verði að olíusölubannið verði kröftugt kjaftshögg í andlit Evrópusambandsins.

Ef olíubannið verður að veruleika mun það koma harðast niður á þeim þjóðum í Evrópu sem síst mega við frekari áföllum, það er Grikklandi, Ítalíu og Spáni. Þessar þjóðir eru háðar olíuinnflutningi frá Íran, þó mest Grikkir sem kaupa þriðjung af sinni olíu frá Íran.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×