Viðskipti erlent

Grikkir samþykkja niðurskurð í skugga óeirða

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gríðarleg mótmæli eru vegna niðurskurðarins.
Gríðarleg mótmæli eru vegna niðurskurðarins. mynd/ afp.
Gríska þingið samþykkti í kvöld umdeildar niðurskurðaraðgerðir sem áformaðar hafa verið um skeið. Niðurskurðurinn er sagður vera skilyrði fyrir því að Grikkland fái 130 milljarða evra lán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Grikkland þarf nauðsynlega að fá lánið til að forðast greiðsluþrot.

Gríðarleg mótmæli hafa verið í dag vegna niðurskurðaráformanna og hafa þau ekki verið meiri siðan að mótmælin voru hvað verst árið 2008. Mótmælendur fyrir framan gríska þingið hentu steinum og bensínsprengjum að þinghúsinu. Nokkur fjöldi folks særðist og byggingar voru brenndar.

Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, hvetur til stillingar og segir að ofbeldi eigi ekki að líðast í lýðræðisríki.

BBC greindi frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×