Viðskipti erlent

Starfsmaður Foxconn sá iPad í fyrsta sinn

Umfjöllun ABC fréttastofunnar um vinnuaðstæður í verksmiðjum Foxconn í Kína var frumsýnd á mánudaginn. Í yfirlýsingu frá Apple eru frásagnir starfsmanna í verksmiðjunum dregnar í efa.

Þetta var í fyrsta sinn sem fréttamaður fær aðgang að verksmiðjugólfi Foxconn. Verksmiðjan framleiðir þúsundir spjaldtölva á hverjum degi.

Fréttamaðurinn ræddi við Zhou Xiao Ying en hún vinnur við frágang á Apple-merkinu fræga sem er aftan á iPad spjaldtölvunum. Hún hélt því fram að vinnuálagið væri gríðarlegt og að hún þyrfti að ganga frá 6.000 Apple-merkjum á degi hverjum. Hún sagði að venjuleg vinnuvakt væri tólf klukkustundir og að hún hafi nokkrum sinnum þurft að taka aukavaktir.

Fréttamaðurinn sýndi Ying síðan ljósmyndir af fjölskyldu sinni á iPad spjaldtölvu sinni. Ying hafði aldrei áður séð virka iPad spjaldtölvu.

Lengi hefur verið grunur um að vinnuaðstæður í verksmiðjum Apple og Foxconn séu slæmar. Það hefur jafnvel verið rætt um svokallað „Nike-augnablik" fyrir Apple.

Nike neyddist til að breyta framleiðsluháttum sínum á tíunda áratugnum eftir að upp komst um vinnuaðstæður í verksmiðjum fyrirtækisins.

Apple dregur staðhæfingar konunnar í efa og bendir á að hún geti ómögulega framleitt meira en 3.000 iPad-bakhliðar á hverjum degi. Apple efast einnig um vaktaálag konunnar.

Hægt er að sjá umfjöllun ABC um Foxconn verksmiðjurnar hér fyrir ofan. Einnig er hægt eða lesa ítarlega frétt Bill Weirs um málið hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×