Viðskipti erlent

Fimm bankar lána Malcolm Walker 175 milljarða

Fimm stórir bankar munu lána Malcolm Walker tæplega 900 milljónir punda eða um 175 milljarða króna til kaupanna á Iceland Foods verslunarkeðjunni.

Þetta kemur fram í frétt á Reuters. Bankarnir sem hér um ræðir eru Credit Suisse, Deutsche Bank, HSBS, Nomura og Royal Bank of Scotland. Lánum þessum verður skipt í tvennt og hluti þeirra verður í formi opinnar lánalínu.

Þá kemur fram að hluti lánanna verður í evrum en ekki pundum þar sem stofnanafjárfestar vilja frekar kaupa skuldir sem eru í evrum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×