Sport

Birgir Leifur endaði í 52. sæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson lék á einu höggi yfir pari á lokahring móts í Áskorendamótaröð Evrópu sem fór fram í Rússlandi. Hann lauk keppni í 52.-55. sæti.

Hann lék á 73 höggum í dag en alls fékk hann þrjá skolla og tvo fugla. Birgir Leifur sýndi meiri stöðugleika en síðustu daga en hann hafði fengið fimm tvöfalda skolla á mótinu fyrir hringinn í morgun.

Birgir Leifur lauk keppni á samtals níu höggum yfir pari, talsvert á eftir efstu mönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×