Viðskipti erlent

Samdrátturinn á Ítalíu minni en óttast var

Samdrátturinn í landsframleiðslu Ítalíu á þriðja ársfjórðungi ársins varð töluvert minni en sérfræðingar höfðu óttast og spáð fyrir.

Landsframleiðslan dróst saman um 0,2% miðað við fyrri ársfjórðung og 2,4% miðað við sama tímabil í fyrra. Spár höfðu hinsvegar gert ráð fyrir 0,5% samdrætti milli fjórðunga og 2,9% milli ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×