Viðskipti erlent

Starfsmönnum SAS settir úrslitakostir, launalækkun eða atvinnumissir

Öllum starfsmönnum SAS flugfélagsins hafa verið settir þeir úrslitakostir að annaðhvort taki þeir á sig umfangsmiklar launalækkanir og aukin vinnutíma eða missi vinnu sína.

Sænskir fjölmiðlar greindu frá því um helgina að SAS rambaði á barmi gjaldþrots. Sænskir ráðmenn hafi setið á löngum og ströngum neyðarfundum um helgina til að reyna að finna lausn á fjárhagsvandræðum félagsins.

SAS þarf nauðsynlega á rúmlega fjögurra milljarða danskra króna eða 90 miljarða króna láni að halda frá fimm norrænum bönkum og Royal Bank of Scotland. Sá böggul fylgir skammrifi að bankarnir krefjast ríkisábyrgðar á þessu láni sínu.

Ríkisstjórnir Norðurlandanna sendu fyrirspurn til Evrópusambandsins um ábyrgðina og í frétt í Dagens Industri segir að sambandið hafi lagt blessun sína yfir hana en með skilyrðum. Helsta skilyrðið er að dregið verði úr opinberu eignarhaldi á SAS en dönsk, norsk og sænsk stjórnvöld fara eiga nú samtals um helmingshlut í félaginu.

SAS er nú að tilkynna umfangsmiklar hagræðingar- og sparnaðaráætlun en í henni er m.a. gert ráð fyrir að fækka starfsmönnum félagsins um 1.100 auk launalækkana hjá þeim sem halda störfum sínum. Verkalýðsfélag flugliða hjá SAS hefur þegar sagt að þessar áætlanir séu óásættanlegar.

Fram kemur í dönskum fjölmiðlum að ef þessi áætlun verður ekki samþykkt af verkalýðsfélögunum blasi gjaldþrot við SAS.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×